Bláfjöll
Vindhraðakort
Þessi vindhraðakort voru unnin af ORION Ráðgjöf árið 2004.
Þeim er ætlað að gefa starfsmönnum og skíðaiðkendum nokkra hugmynd um
reiknaða dreifingu vindhraða á hinum ýmsu stöðum á skíðasvæðinu.
Viðmiðun kortanna er veðurstöð við skíðagöngusvæðið
(Veðurstofuheiti: Bláfjöll, nr. 1486) og sýna þau reiknaðan vindhraða í 15
m hæð yfir jörðu. Mæligögn veðurstöðvarinnar ná yfir tímabilið frá 27.
febrúar 1997 til 20. nóvember 2003.
Vindhraðamælir er á Bláfjalla skála og má sjá veðurupplýsingar frá honum á
slóðinni:
http://vedur.is/vedur/athuganir/kort/faxafloi/#group=11&station=1487
Veðurstofa Íslands er með veðurstöð við
skíðagönguleiðina; upplýsingar frá henni er að finna á slóðinni:
http://vedur.is/vedur/athuganir/kort/faxafloi/#group=111&station=1486.
Hvernig nota ég kortið?
Veldu stað eða svæði á kortinu og skoðaðu hvaða litur er
á því.
Berðu litinn á svæðinu við litaskalann hér að neðan og þá fæst
margföldunarstuðullinn.
Margfaldaðu vindhraðann úr mælistöðinni (viðmiðunarstöð kortanna; nr. 1486)
með marg-földunarstuðlinum og þá fæst útreiknað viðmiðunargildi vindhraða á
skoðunarsvæðinu.
Á þessu sýniskorti er vindáttin úr norðri (0°), sjá
ör í hægra horninu uppi.


Dæmi um vindhraðakort
Kortin
Vindkæling
Vindkæling eða réttara sagt hættan á vindkælingu getur verið áhugaverð fyrir þá sem stunda skíði og fjallamennsku.
Með því að nota hitatölu og vindhraða frá veðurstöðinni er hægt að sjá
hversu mikil vindkælingin er á húðinni.
Taflan hér að neðan er gerð upp úr töflu á eftirfarandi heimsíðu:
http://www.weather.gov/os/windchill/index.shtml
